blogg?
akkurat núna er ég reyndar nýkomin úr endajaxlatöku, voru allir búnir að hræða úr mér líftóruna og ég var svo stressuð og skalf svo mikið þegar ég var komin í stólinn að hann þurfti að gefa mér róandi.. heheh... sem ég hefði ekki þurft því þetta va síðan bara ekkert mál... maður fann ekki fyrir neinu, tók innan við 30 mínútur að taka alla fjóra þótt það þyrfti að skera og brjóta þá niður og sauma áf eftir... SNILLDAR tannlæknir mæli hiklaust með þeim þarna í Hlíðarsmáranum. En svo er bara að bíða og sjá hvernig útlitið verði á morgun.. hvort ég eigi eftir að líta út eins og hamstur eða ekki... heheh. mamma kom suður til að vera hjá mér því ég va svo stressuð fyrir þetta allt saman og er búina ð vera að dekra við mig í allan dag.... hehe.... ekki verra:P
en jæja ... farin að fá mér eithvað í gogginn...
kv. Elín tannlausa
Gleðileg jól

Jólakveðjur Elín Adda
Styttist óðum í jólin
Við skvísurnar erum að fara jólaútaðborða um helgina... er orðin ýkt spennt.:D langt síðan við höfum gert eitthvað svoleiðis:D get ekki beðið stelpur;) en annars er bara minnst að frétta nema hvað að ég er viss um að Ingi á bráðum eftir að fá flog og henda mér alfarið út og setja inngöngu bann á mig... hihihi.... er algjörlega búin að rugla strákarómansinum í Koltröðinni... heheheh... en þangað til næst
bestu kv. Elín
Sælt veri fólkið
kv. Elín
BÚIN
PPPR'O'O'OFFFF!!
Prófin byrja formlega á mánudaginn og ekki laust við að stressið sé farið að gera vart við sig... reyndar alveg hætt að geta sofið á næturnar og lifi á magc á daginn... verð gáfuleg þegar þessum þrem vikum líkur, algjörlega gagagagag... dæmi um það hvað ég er orðin heiladauð á þessum prófum er að Unnur var að koma frá Noregi í dag og við ætluðum að hittast þegar hún kæmi í bæinn, var búin að leggja þetta allt á minnið og áminna sjálfa mig á að gleyma þessu EKKI... og viti menn ÉG GLEYMDI!!!! Unnur senti mér sms og ég heyrði ekki neitt og tók ekki eftir því fyrr en hun var stigin upp í vél til Egilsstaða :'( Ég er fáviti að gleyma svona hlutum en þetta er bara gott merki um það hversu illa háskóli fer með fólk, það fær alzheimer einkenni á besta aldri... pælið í því hvernig ég verð eftir ár?????.... 10 ár?????... verð ekki viðræðuhæf og búin að gleyma nöfnunum á nánustu fjölskyldumeðlimum...
en jæja... ætti reyndar að vera læra núna, kaflapróf í varmó í fyrramálið:( djöfull verður djammað þegar þessu lýkur öllu... öllum heilaseilum verður sko skolað út , hver vill vera memm????
kv.......
Danmörk
Eftir nákvæmlega 3 sólarhringa sit ég í leigubíl á leið inn í Köben. Bara smá hængur á þessu öllu saman.. jú auðvitað náði ég mér í eina efnilega kvefpest svona áður en ég færi.. bara svona til að krydda þetta aðeins:( Get ekki sagt að heppnin hafi verið að elta mig seinustu vikuna. Fór í ljós á miðvikudaginn og skaðbrann svo að ég baðaði mig bara upp úr aloevera í tvo daga. Það hefði s.s. verið í lagi ef ég hefði ekki líka látið stela af mér skónum mínum!!! einhver hafði tekið vitlausa só þannig að ég fann þá ekki þegar ég fór af ljósastofunni og einhverjir eins númeri stærri og hryllilega slitnir skór komnir í staðinn.
Ákvað svo að kíkja niðrí bæ á föstudaginn en ætlaði sko að vera komin snemma heim. Nei ég týndi húslyklunum á Hverfis og Árni fyrir austan þannig að það var annaðhvort að finna lyklana eða fara og gista upp í skóla í einhverjum sófanum. ... Lyklarnir fundust nú sem betur fer eftir 3 tíma leit þannig að ég fór þá bara beint heim að sofa...
AFHVERJU virðast svona hlutir bara koma fyrir mig? Ég er alveg hreint snillingur í að klúðra hlutunum og óheppnin virðist hafa ellt mig upp á síðkastið. Verð að finna leið til að skilja óheppnina eftir heima fyrir Danmerkurferðina og fara og kaupa mér fínustu líf og slysatrygginguna hjá VÍS áður en ég fer út.
kærlig hilsen Elín
Kærkomin heimsókn
Já, mamma og pabbi eru búin að vera í heimsókn í næstum viku núna... alltaf góður matur, full kista af kjöti og herbregið mitt loksins alveg að verða tilbúið... Verður ekkert smá fínt á eftir. Er komin með nokkrar myndir af fyrir-eftir, en herbergið er ekki alveg tilbúið. Myndirnar eru á www.public.fotki.com/eadda... koma fleiri myndir þar inn á næstunni þannig að verið dugleg að fylgjast með;)
DK
Kærlig hilsen Elín:D
Heimsókn
Reynir kom og heimsótti mig í bæinn um helgina:D svaka stuð hjá okkur og var með svo mikil fráhvarfseinkenni í dag að ég mætti ekki í skólann og lærði ekki neitt... fór þess í stað að laga til alveg eins og brjálæðingur. tók fötin upp úr töskunum (fyrr má nú vera búin að búa hér í 4 vikur) og raðaði öllu á sinn stað og tók síðan eldhúsið í gegn:D Lenti síðan í svolitlu skrítnu... búin að leita og leita að kústinum mínum en finn hann ekki... ekkert svakalega stór íbúð sem ég bý í og ekki var hann inní þvottahúsi og fínkembdi meira segja geymsluna sem er ekki nema rúmur fermeter, fór samt þrisvar þangað, bara svona til að vera alveg viss, en enginn kústur... það er einhver dularfullur húsálfur sem býr hérna hjá mér:S er einmitt ein heima og held ég sofi bara með ljósin kveikt... er svo mikill hræðslupúki þegar ég er svona ein í íbúðinni. en jæja... farin að sofa og er viss um að þegar ég vakna í fyrramálið verður kústurinn það fyrsta sem ég sé... svo týpískt.
